<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30

<b>Hliðarsíðan</b>

* B2.is

*Hugi.is

*Lizza Explains it all

* Wrigley's Video Tutorial

* HTML tutorial

* EXIT.IS

* 1001 Fonts.com

*Hinar geðþekku gyðjur



If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed


March 17, 2007
valið..

 

Jæja, var að enda við að staðfesta valið mitt fyrir haustönn 2007. Þetta líður allt svo skrambi hratt. Ég fæ bara í magan við þá tilhugsun að prófin fari að nálgast..! shitt fokk shitt.. :/

En semsagt, þá var alltof mikið af áföngum sem mig langar að taka. Ég á bara 12 einingar eftir til að útskrifast og þarf þessvegna alltaf að kítta uppí töfluna mína með allskonar vali. Valdi t.d. latínu, heimspeki og kvikmyndasögu. Ásamt því að velja frönsku sem mig grunar að verði ekki kenndur vegna lélegrar þáttöku, spænsku og eðlisfræði 203... Var mikið að velta fyrir mér hvort ég ætti að velja skák líka.. langaði það alveg.. :) já, ég veit, NERD! en hey, who cares?

Reyndar er alveg óþolandi hvað áfangar eru kenndir sjaldan, eins og KVK til dæmis. Hver áfangi er kenndur á 8.hverri önn. Já, á 8. hverri önn er á 4 ára fresti! Það er ekkert gaman..

Ég gæti ábyggilega dundað mér í skólanum í svona 10 ár að taka sjaldkennda áfanga..

-Dóra Ha?


Posted at 11:17 by dóra ha
commentíos (1)  

March 16, 2007
Einhver vaknaður?


Hver var að uppgötva bloggsíðuna sína aftur? Alveg búin að steingleyma henni.. eða reyndar ekki alveg.

Var samt að átta mig á því hvað gífurlegt magn af bloggsíðum ég á í raun, án gríns.. ég á bloggsíður útum ALLT. Það bara stendur ekkert á þeim.. :)

Þetta þýðir samt ekki að ég sé eitthvað að fara að endurvekja þessa síðu.. nehh.. veit ekki hvort ég þoli url-ið að þessari síðu.. haha.. Dórilla.. hvað er það langt síðann. Alveg síðan í grunnskóla að minnsta kosti. Átti að vera eitthvað GEÐVEIKT kúl, rímar við górilla.. :) æjhhh

Reyndar var ég hissa þegar ég sá að seinasta bloggfærslan mín var bara í fyrrasumar. Mér finnst eins og ég hafi ekki bloggað  hérna í MÖRG ár.. en jújú, bara nokkrir stuttir mánuðir síðan..

 


Posted at 21:25 by dóra ha
Skoðanir, einhver??  

June 19, 2006
á klámbekk..?


Í fúlustu alvöru krakkar ég er farin að hafa áhyggjur..! hvar í ósköpunum situr MSN-adressan mín á glámbekk hálfnakin með bjór og pulsu..?!?

seinasta mánuðinn hafa ábyggilega 20 asísk-samerísk-afrískir gaurar verið að adda sér inn á MSN-ið mitt.. og mér hefur ekki dottið í hug að tala við þá! 

hvernig veit ég þá að þeir eru asísk-samerísk-afrískir..? jú, þeir heita allir " #$%&#&&%!$%"&//!¨*>?%$# " eða " (f) (c) zirtafos (c) (f) " og er með MSN-adressur eins og " hotboy_8080@hotmail.com " eða " biricigimihifimilisimishi@hotmail.de " reyndar prófaði ég að segja halló við einn en fékk bara til baka "do you have a pic?" svo ég blokkaði gaurinn..

svo ef þið hittið MSN-ið mitt á glámbekk... viljiði þá lána því kápuna ykkur, gefa því kókómjólk (venjulega, ekki sykurskerta) og segja henni að drulla sér heim, því ég er orðin áhyggjufull um hana...


:-*

glámbekkur líkt og MSN-ið mitt situr á..

 

-DÓRA HA?


Posted at 19:53 by dóra ha
commentíoss (6)  

June 5, 2006
Koddu þarna koddinn þinn..


Ótrúlegt hvað maður er vanafastur og hjátrúafullur.. maður heldur að maður geti alveg spjarað sig við breyttar og nýjar aðstæður en svo kemstu bara að því að allt gengur eins og maður væri með drullu.. eins og t.d. kom ég heim úr vinnunni og komst að því að mamma hafði lánað koddan minn í einhverja ferð (takk mamma.. af ÖLLUM koddum í húsinu, taktu minn..!) gerði reyndar ekki mál úr því.. fékk bara annan kodda, en hef ekki getað sofið almennlega alla helgina út af þessum grjónapoka sem kallast á koddi.. hann er svona eins og poki fullur af geli sem þrýstist í burtu þegar þú legst með hausinn á hann... svo hann verður vita gagnlaus..!!

ok.. kannski ekki gott  dæmi þar sem svefnleysi mitt er lélegum kodda að kenna en ekki breyttum aðstæðum.. en SAMT..!! hver býr til svona kodda..?!?!

Koddar eiga að vera mjúkir en vel fylltir svo þeir haldi höfðinu á manni uppi þegar maður leggst á þá..

En sem betur fer voru ferðalangarnir að koma með koddan minn svo ég get sofið vært í nótt áður en ég fer í Haukadal... :-)

 

-DÓRA HA?

 

 


Posted at 18:19 by dóra ha
commentíos (1)  

Next Page